Þriðjudagur til þrautar
Það er spurning hvort maður þurfi ekki að gera sér aðra ferð í sendiráðið til þess að kjósa í forsetakosningunum á ný í ljósi nýlegra atburða. Tæmdi bankareikninginn svo gott sem og keypti mér japönsku, til þess að reyna að ná einhverjum áttum. Annars var varla nokkur andvari í dag og bjó maður því vel um sig í öllum þeim loftkældu rýmum sem maður komst í tæri við. Ætli mínir ensku, dönsku og þýsku kennarar heima á Fróni hafi ekki einhverntíman sagt ef ekki marg ítrekað það fyrir mér að það þýddi ekkert fyrir mig að þykjast læra erlend tungumál. Svei mér þá ef ég sammælist þeim ekki loksins og læt af þvermóðskulegum mótþróa við þá sem vita betur - og þó. Maður opnar bara bókina aftur og reynir að hefja lestur aftur á sömu blaðsíðu og var lesin fyrir helgi.
0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home